Golfklúbbur Hveragerðis ræður vallarstjóra

Hveragerði 2. mars 2016.

vallarstj053-1Í dag var gengið frá samningum við Stein G. Ólafsson í starf vallarstjóra hjá Golfklúbbi Hveragerðis, í samræmi við samþykkt stjórnar klúbbsins þann 1. mars en Steinn er þegar tekinn til starfa.

Steinn er alinn upp í Hveragerði, en hefur síðastliðna þrjá áratugi sinnt störfum vallarstjóra, fyrst í Öndverðanesi, svo í Kiðjabergi, en síðustu átján ár var hann vallarstjóri á Hlíðavelli í Mosfellsbæ.

Stjórn GHG býður Stein velkominn til starfa og hlakkar til samstarfs við hann.

vallastjóri041-1

Leave a Reply