Púttmótaröð GHG (breyting á dagsetningum)

Ágætu félagar.

Eins mörg ykkar vita þurfti að fella niður púttmótið sem átti að vera 12. mars s.l. og nú er komið í ljós að við verðum líka að fella niður mótið sem átti að vera 2. apríl vegna knattspyrnumóts í Höllinni.

Til að bæta félögum þetta upp hefir mótanefnd ákveðið að hafa mót mánudaginn 28. mars ( annan í páskum ) á hefðbundnum tím þ.e. kl. 10 – 12 og síðan sunnudaginn 3. apríl í stað 2.apríl eins gert var ráð fyrir.

Svona til að taka þetta saman þá verða næstu púttmót á eftirfarandi dögum: 26. mars, 28. mars ( annar í páskum ) sunnudaginn 3. apríl og síðan 9. apríl og svo lokamót og verðlaunaafhending 16. apríl.

Vona að þetta setji ekki allt of mikið úr skorðum hjá félögum.

Kær kveðja

Mótanefnd.

Leave a Reply