GHG fréttir

Kæri félagi.

Ákveðið hefur verið að breyta dögum á púttmótaröð. Ætlum við að sameina æfingartímann og púttmótaröðina og er tíminn nýttur á sunnudögum klukkan 17:00 og erum við til 18:30 í Hamarshöllinni.

Þorrablót.
Þorrablótið sem áætlað var að halda aðra helgi verður því miður að fresta vegna vandræða með hitann í skálanum hjá okkur. En áætlað er að halda aðra gleði um leið og aðstæður leyfa en það verður auglýst síðar.

Greiðsla árgjalda.
Innheimta gengur vel og verður næsta vika notuð til að búa til greiðsluseðla í heimabanka hjá félögum sem ekki hafa greitt nú þegar, ýmis ein eða þrjár greiðslur eftir því hvort fólk hefur óskað eftir skiptingu .

Kær kveðja.
Stjórn GHG

Leave a Reply