Aðalfundur 2021


Kæru félagsmenn,

í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu hefur stjórn GHG ákveðið
að fresta aðalfundi félagsins fyrir starfsárið 2021 til
fimmtudagsins 13. Janúar 2022 nk. kl. 20:00

Fundurinn verður haldinn rafrænt og eru upplýsingar til að tengjast
honum hér fyrir neðan.

Ef fjöldatakmarkanir leyfa verður fundurinn haldinn í golfskála GHG
í Gufudal á sama tíma.

Tilkynning um slíka breytingu verður send út 6. Janúar nk. ef af
verður.

Vinsamlegast sendið tilkynningu um þátttöku á fundinum með því
að senda tölvupóst á ghg@ghg.is

Með ósk um gleðileg jól og farsælt komandi ár,

Stjórn GHG.

Fjarfundur 13. janúar

Smelltu hér til að tengjast fundi: Tengjast fundi.
Upplýsingar hvernig á að nota Teams: Smelltu hér.

Smelltu hér til að skoða Ársreikning 2021

Golfklúbbur Hveragerðis
Aðalfundur 2021

Boðað er til aðalfundar Golfklúbbs Hveragerðis þriðjudaginn 21. desember 2021 kl. 20.00 í golfskálanum.

Dagskrá aðalfundar:

  1. Skipan fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla stjórnar um starfsárið 2021
  3. Ársreikningur 2021
  4. Félagsgjöld 2022
  5. Fjárhagsáætlun 2022
  6. Lagabreytingar
  7. Kosningar
    1. Kosning þriggja stjórnarmanna til tveggja ára
    2. Kosning þriggja varamanna í stjórn til eins árs
    3. Kosning tveggja skoðunarmanna til eins árs og eins til vara
  8. Viðurkenningar til félagsmanna
  9. Önnur mál

Ársreikningur 2021 er aðgengilegur á heimasíðu GHG.

Stjórn GHG