Ath. fundi frestað Aðalfundur 2019 – 17.des

ATH. ATH.

Aðalfundi sem átti að halda 10. des hefur verið frestað um eina viku vegna veðurs. Aðalfundur GHG fer fram þann 17. des í golfskála klukkan 20:00.

Kveðja.
Stjórn GHG.

——-

Boðað er til aðalfundar Golfklúbbs Hveragerðis þriðjudaginn 10. desember 2019 kl. 20.00 í Golfskálanum Gufudal.

Dagskrá aðalfundar:
Skipan fundarstjóra og fundarritara
Skýrsla stjórnar um starfsárið 2019
Ársreikningur 2019
Félagsgjöld 2020
Fjárhagsáætlun 2020
Lagabreytingar

Kosningar
Kosning eins stjórnarmanns til eins árs
Kosning þriggja stjórnarmanna til tveggja ára
Kosning þriggja varamanna í stjórn til eins árs
Kosning tveggja skoðunarmanna til eins árs og eins til vara
Viðurkenningar til félagsmanna
Önnur mál
Ársreikningur 2019 verður sendur til félagsmanna fyrir fundinn eftir að stjórn hefur afgreitt hann, en reiknað er með að hann verði afgreiddur á stjórnarfundi þann 8. desember.

Félagar eru hvattir til að mæta, en í kaffihléi er reiknað með stuttri kynningu á „Golfbox” og kannski smá kynningu á „World handicap system”.

Fyrir hönd stjórnar GHG
Össur Friðgeirsson formaður

Áritaður ársreikningur 2019

Leave a Reply