Meistaramót GHG 2021

Meistaramót GHG fór fram dagana 7.-10. júlí við þokkalegar aðstæður.
Þátttaka var ágæt en  40 kylfingar tóku þátt í mótinu í nokkrum flokkum kvenna og karla.

Fannar Ingi Steingrímsson varð klúbbmeistari karla
á nýju mótsmeti en hann spilaði hringina fjóra
á 275 höggum eða 13 undir pari.
Klúbbmeistari kvenna varð síðan
Ingibjörg Mjöll Pétursdóttir en hún spilaði
mótið á 391 höggi.

 

 

Klúbbmeistari karla 50+ varð Erlingur Arthursson á 317 höggum eftir fjóra hringi. Klúbbmeistari karla 70+ varð Helgi Hannesson á 259 höggum eftir þrjá hringi.

Mótanefnd og stjórn klúbbsins vilja þakka kylfingum fyrir þátttökuna og vallarstarfsmönnum fyrir frábæra umgjörð og völl í topp standi.

1. flokkur karla 2. flokkur karla 3. flokkur karla
     
1. flokkur kvenna Opni flokkur karla Opni flokkur kvenna

Önnur úrslit má sjá hér.

 

Leave a Reply