Meistaramót 2016

GHG-logoMeistaramótið fer fram dagana 6. til 9. júlí.

 

A.T.H Kylfingar þurfa að skrá sig á rástímablað í golfskála fyrir miðvikudag og fimmtudag!

Leikdagar:

6.júlí   Miðvikudagur- Rástímar frá kl. 15   Allir flokkar

7.júlí    Fimmtudagur-Rástímar frá kl. 15    Allir flokkar

8.júlí    Föstudagur-   Rástímar eftir uppröðun frá kl. 15 Karlaflokkar-Kvennaflokkar

9.júlí    Laugardagur- Rástímar eftir uppröðun frá kl. 9 Allir flokkar

Verðlauna afhending verður að móti loknu 9. júlí.

Skráningu líkur 2. júlí kl 19:00

Allir klúbbfélagar eru hvattir til að taka þátt.

Reglugerð um meistaramót GHG

 

  1. Meistaramót GHG skal haldið í júlí ár hvert.

 

  1. Þátttökurétt hafa allir fullgildir félagar klúbbsins.

Einungis klúbbfélagar með GHG sem aðalklúbb geta orðið klúbbmeistarar.

  1. Keppt skal í karla, kvenna, unglinga- og öldungaflokki.

 

  1. Leikmönnum er raðað í flokka eftir forgjöf, fyrsta leikdag mótsins.

Keppni hefst á miðvikudegi og stendur yfir í fjóra daga, allir flokkar ljúka l leik á laugardegi, lokadegi mótsins.

Mótsstjórn raðar niður leikdögum hjá þeim flokkum sem spila þrjá daga.

Fyrstu tvo mótsdagana skrá þátttakendur sig á rástíma í skála, en 3. og 4. dag mótsins verður ræst út eftir flokkum og skori fyrri keppnisdagana.

  1. Leikinn skal höggleikur án forgjafar í eftirtöldum flokkum:
  2. Karla flokkar, teigar 54, 72 holur, (4×18 holur).
  3. Meistaraflokkur, forgjöf 0 til 9,0.
  4. 1.flokkur karla, forgjöf 9,1-15,0.

iii. 2.flokkur karla, forgjöf 15,1-24,0.

  1. 3.flokkur karla, forgjöf 24,1-36,0.
  2. Kvenna flokkar, teigar 45, 72 holur, (4×18 holur).
  3. Meistaraflokkur kvenna, forgjöf 0-28,0.
  4. 1.flokkur kvenna, forgjöf 28,1-36,0.
  5. Öldungaflokkar:
  6. Karlar 50-69 ára, teigar 50, 72 holur; (4×18 holur).
  7. Karlar 70 ára og eldri, teigar 45, 54 holur; (3×18 holur).

iii. Kvenna 50-69 ára, teigar 45, 54 holur; (3×18 holur).

iiii. Kvenna 70 ára og eldri, teigar 45, 54 holur; (3×18 holur).

  1. Unglinga- og barnaflokkar:
  2. Strákar 16-18 ára, teigar 54, 72 holur (4×18 holur).
  3. Stelpur 16-18 ára, teigar 45, 54 holur (3×18 holur).

iii. Strákar 13-15 ára, teigar 45, 54 holur (3×18 holur).

  1. Stelpur 13-15 ára, teigar 45, 54 holur (3×18 holur).
  2. Barnaflokkur 12 ára og yngri, teigar 45, 27 holur ( 3x9holur). ? ( Tilbúinn teigur )

Heimilt er að fella niður þátttöku í einstökum flokkum eða breyta flokkaskipan ef ekki er keppnisfært í flokkunum (þátttakendur eru færri en 3).

6. Óvæntar uppákomur:

a.Ef hætta þarf leik vegna óviðráðanlegra orsaka, skulu skor í öllum flokkum viðkomandi dag teljast ógild.

b.Ef ekki nást úrslit eftir lögbundinn holufjölda, skal leika þriggja holu umspil og ef ekki nást fram úrslit í umspili þá skal leika bráðabana.

i. Í umspili skal leika holur 4, 8 og 9.

ii.Í bráðabana skal leika holu 9 þangað til sigurvegari fæst.

  1. Klúbbmeistarar GHG í karla- og kvennaflokki eru þeir kylfingar sem leika 72 holur á fæstum höggum.

Sigurvegari í hverjum flokki verður flokkameistari.

  1. Skráningu skal vera lokið kl. 19:00 tveimur dögum fyrir fyrsta keppnisdag.

Leave a Reply