Kynning á golfi og golfsystur

10. júní – Opið hús í Golfskálanum milli kl. 13 – 15 

PGA golfkennari á staðnum og kynnir áhugasömum starfsemi klúbbsins. Allir velkomnir!

Bjóddu Golfsystur í heimsókn

Við viljum endilega fjölga konum í golfíþróttinni. Því hvetjum við þig til að bjóða góðri konu í heimsókn í klúbbinn okkar. Þú ert gestgjafinn og getur sýnt þinni #golfsystur aðstöðuna hjá okkur og boðið henni upp á kaffi.

Golfsystir er einhver sú kona sem þig dreymir um að kynnist dásemdum golfíþróttarinnar. Golfsystir er á hvaða aldri sem er, eiginkona, dóttir, systir, vinkona, frænka o.s.frv., einfaldlega sú sem þú vilt bjóða í heimsókn í golfklúbbinn þinn á sunnudag.

Heitt á könnunni og ís fyrir krakkana. Golf er skemmtileg íþrótt fyrir alla. Láttu sjá þig

Leave a Reply