FRESTUN – Jaxlamót og vinnudagur!

Frestun á Jaxlamóti og vinnudegi.

Okkur þykir einstaklega leitt að þurfa að fresta vinnudeginum um viku vegna óviðráðanlegra aðstæðna og veikinda. Jaxladagurinn verður því þann 4. maí. og mæting kl. 10:00

Stefnan er að reyna að opna völlinn inn á sumarflatir þann 1. maí. eingöngu fyrir félagsmenn.

Kveðja frá vallarstarfsmönnum

Nú er heldur betur sól að hækka á lofti og völlurinn að taka mjög vel við sér og margir félagsmenn að nýta dagana til golfiðkunar. Völlurinn er opinn inn á vetrarflatir fyrir félagsmenn. 

Þann 27. apríl stefnum við á að halda okkar árlega vinnudag og halda jaxlamótið. Hvetjum við félagsmenn að koma og hjálpa þar sem verkin eru af margvíslegum toga og margar hendur vinna létt verk.

Kær kveðja frá vallarstarfsmönnum.

Leave a Reply