Holukeppni GHG

Holukeppni GHG 2015 verður leikin á föstum leikdögum fyrri part sumars.

Fyrsta umferð sem fyrirhuguð var að yrði leikin 15. og 16. maí fellur niður.

Önnur umferð verður leikin 29. og 30. maí eins og áður hefur verið boðað.

Þriðja umferð er áformuð 12. og 13. júní og undanúrslit 26. júní og úrslit 27. júní.

Mótanefnd áskilur sér rétt til að færa til mótsdaga í þriðju umferð sem og undanúrslit og úrslit. Verður það tilkynnt síðar ef af verður.

Dregið verður í leiki að kvöldi sunnudagsins 17. maí og er skráningarfrestur framlengdur til kl. 18 þann dag. Ef fleiri en 16 skrá sig í hvorn flokk verður sett á undankeppni.

Félagsmenn eru hvattir til að skrá sig á golf.is ( skráð skal í “Holukeppni 1. umferð” sem sett var á 15. maí)

Mótanefnd GHG

Leave a Reply