Fannar Ingi gengur til liðs við Troy University

fannari-ingi-steingrimsson-og-foreldar-hansFannar Ingi Steingrímsson undirritaði nýverið samning við Troy University í Alabama í Bandaríkjunum.  Fannar Ingi sem er átján ára stundar nám við Kvennaskólann í Reykjavík og heldur utnan næsta haust til náms í Troy University og mun æfa og spila golf með liði skólans í Sun Belt deildinni.

„Ég er mjög ánægður með að fara til Troy“ segir Fannar Ingi.  „Þeir eru með frábært nýtt og fullkomið golfæfingasvæði á skólalóðinni og heppileg stærð á skólasamélaginu að mínu mati.  Nálægðin við æfingasvæðið og veðrið gerir mér mögulegt að æfa vel og nálgast markmið mín í golfi. Svo er auðvitað öll mótareynslan sem ég á von á að fá.“

Fannar Ingi hefur spilað með unglingalandsliði Íslands, spilað fjölda móta á Íslandsbanka- og Eimskipsmótaröðinni auk fjölda móta erlendis.  Fannar Ingi hefur þrívegis orðið íslandsmeistari í unglingaflokkum og erlendis á hann einnig ágætan árangur, en þar stendur uppúr sigur á Junior Honda Classic á Florida snemma á árinu.

Fannar stefnir á að vinna áfram með þjálfarteimi sínu hér heim og Andrés Jón Davíðsson verður áfram aðalþjálfari hanns í samvinnu við Matthew Aaron Terry sem er þjálfari og liðstjóri karlaliðs Troy.  „Our team is very excited to add Fannar to our family here at Troy University.  Fannar brings a world of talent as well as a great work ethic and tons of tournament experience to our Team.  We are looking forward to getting Fannar to campus in the fall of 2017” segir Coach Terry.

Leave a Reply