Fréttir af starfi – mars 2026

Kæru félagar

Vorið er handan við hornið!

Við ætlum að hafa opið hús næsta laugardag 28. mars frá kl 12:30 til 14:00. 

Það sem við ætlum að gera er að reyna að sitja fyrir svörum varðandi golfbox og nýja appið sem þarf að læra á, ekki mikil breyting þó, en þarf að sækja nýtt app. Einnig golfhermi og vera með sýni kennslu fyrir þá sem það vilja og góða punkta fyrir sveifluna sem er hægt að lesa úr golfherma forriti. 

Hvetjum nýliða sérstaklega til að mæta, en að sjálfsögðu allir velkomnir. 

Kær kveðja. 
Einar Lyng og Erlingur

Leave a Reply