Nýr samningur við Hveragerðisbæ

10. febrúar síðastliðin var gengið formlega frá samstarfssamningi við Hveragerðisbæ til ársloka 2018.

Samningurinn er bæði mikilvægur klúbbnum og sveitarfélaginu. Bæði bæjarstjórn og stjórn GHG hafa samþykkt samninginn.

Myndin er tekin við undirritun samningsins en Aldis Hafsteinsdottir bæjarstjóri skrifaði undir fyrir hönd

Hveragerðisbæjar og Auðunn Guðjónsson formaður GHG fyrir hönd klúbbsins.

Vottar voru Jóhanna Hjartardóttir menningar- og frístundafulltrúi Hveragerðisbæjar og Össur Friðgeirsson gjaldkeri GHG.

Leave a Reply