Fréttir – júní

Sumaræfingar
Viljum minna á að golfæfingar fyrir alla krakka 6 ára og eldri sem vilja
byrja að æfa golf hefjast á morgun mánudag og verða alla mánudaga og
fimmtudaga í sumar klukkan 18 til 18:45.

Nýliðaæfingar
Nýliðaæfingar hefjast á fimmtudag og verða þær á fimmtudögum í sumar
klukkan 19:00. Lokaæfingin verður 1. ágúst. Frí verður í
meistaramótsviku.
Hvetjum alla nýliða sem ætla að taka þátt í sumar að skrá sig hjá Einar
Lyng. Nánar hjá Einari hverjir geta sótt þessar æfingar.

Byrjendanámskeið
Námskeiðið er 3 skipti og verður það haldið þann 10. 11. og 18. júní
klukkan 19:00 og kostar 6000kr á mann.
Nánari upplýsingar hjá Einar Lyng PGA golfkennara, einarlyng@ghg.is.

Allir þeir sem telja sig ekki vera á póstlista hjá golfklúbbnum mega endilega vera í sambandi við Einar Lyng til að láta skrá sig (einarlyng@ghg.is)

Leave a Reply