Þorrablót:
Þorrablótið fór fram um síðustu helgi og var mikil ánægja með það og fólk ánægt með kræsingarnar sem þar voru bornar fram.
Ný tæki:
Grafan nýja var að lenda á planinu og er meðfylgjandi mynd af Garðari vallarstjóra í dag þegar hann tók hana af vélavagninum. Mjög vegleg og góð vél sem hentar okkar búskap.
Árgjöld:
Fjölmargir hafa nú þegar nýtt sér að greiða árgjaldið með afslætti. Þeir sem ekki eru búnir að greiða fá seðil í heimabanka á næstu dögum fyrir árgjaldi 2026.
Æfingar:
Æfingar fyrir krakka eru í gangi og eru stráka æfingar kl 17:30 á fimmtudögum og stelpu æfingar á sunnudögum kl 16:30. Þess má geta að núna eru okkar afreks strákar Sigurður Grétar og Theodór að hjálpa til með þær, og stjórna þeir þeim ásamt Einari fram á vor.
Kveðja frá stjórn og starfsfólki.

