Golfnámskeið í júní

Kæru félagar.
 
Tveggja daga golfnámskeið verður haldið þann 2. og 9. júni. Námskeiðið er kl. 18:00-19:30 og ef fyllist í það munum við tilkynna um það ef með þarf.
 
Kennarar á námskeiðinu eru þeir Guðmundur Ágúst Kristjánsson atvinnukylfingur og Einar Lyng Hjaltason PGA golfkennari.
 
Námskeiðið kostar 10.000 kr. á mann og hægt að senda póst á einarlyng@ghg.is til að skrá sig á námskeiðið. Einnig ætlar Gummi að bjóða kylfingum uppá einkakennslu og er hægt að senda honum póst beint á netfangið golfkennslagumma@gmail.com.

Leave a Reply