Brautalýsing

Hola 1 2 3 4 5 6 7 8 9


Gulir 235 514 281 270 345 293 170 449 150 2707

Rauðir karla 200 456 206 233 283 254 154 395 111 2292

Rauðir kvenna 200 456 206 233 283 254 154 395 111 2292

Forgjöf 9 1 7 15 3 11 17 5 13


Par 4 5 4 4 4 4 3 5 3 36














Hola 10 11 12 13 14 15 16 17 18
Alls CR/Slope
Gulir 235 514 281 270 345 293 170 449 150 2707 5414 67.8/118
Rauðir karla 200 456 206 233 283 254 154 395 111 2292 4584 64.6/107
Rauðir kvenna 200 456 206 233 283 254 154 395 111 2292 4584 69.6/110
Forgjöf 10 2 8 16 4 12 18 6 14


Par 4 5 4 4 4 4 3 5 3 36 72



Brautalýsingar eftir Gunnar Marel fgj. 2,0

1/10 hol 

235m/200m

Skemmtileg og falleg, stutt hola, öll upp í móti. Nota venjulega hybrid kylfu í teighögg til að lenda ekki í læknum sem uppi á hæðinni og sker brautina.

Reyni að eiga 60-80 metra að flötinni eftir teighögg. Í öðru högginu þarf að gera ráð fyrir hæðarmismunim sem er nokkur.

Par er gott hér, því þetta getur verið hættuleg hola. Þess má geta að líklega er þetta eina holan í heiminum sem státar af hver sem torfæru.


2/11 hola  
514m/456m

 Ein fallegasta par 5 hola á landinu með mjög fallegt útsýni af teig. Hér er mjög mikilvægt að vera frekar hægra megin í teighögginu og fá þannig rúll

niður hæðina (vinstra megin er kargi sem ekki er gott að lenda í). Annað höggið getur verið vandasamt því oft er staðan í niður- og hliðarhalla.

Venjulega legg ég upp fyrir innáhöggið en í miklum meðvindi er vel hægt að ná inn á flöt í tveimur höggum. varasamt er að lenda hægramegin við

flötina því þá stendur maður frammi fyrir erfiðu lob höggi. Par er gott hér en ef vindurinn er í bakið er fuglinn betri.

 

3/12
281m/206m

Skemmtileg par 4 hola en mjög erfið í mótvindi. Tveir skurðir beggja vegna brautarinnar í 170-190m færi frá teig. Mjög mikilvægt að sjá hvar holan

er staðsett á flötinni. Ef það er mjög framarlegaer gott að eiga fullt högg með pw eða sw. Par er gott hér en alltaf möguleiki á fugli.


4/13 
270m/233m

Falleg hola og ef aðstæður leyfa er hægt að reyna við flötina í teighögginu. Annars nota ég venjulega 4-5 járn og legg upp u.þ.b. 60-80m frá flöt og

á þá venjulega góða möguleika á fugli. Hæðamismunur er það sem þarf að varast og vera alls ekki of langurþá hallar flötin öll frá. Mjög skemmtileg flöt

með holustaðsetningum. Fugl er alltaf vel þeginn hér.


5/14
345m/283m

Löng og erfið par 4 braut sem liggur í hundslöpp til hægri, þar sem teighöggið skiptir miklu mál. Hægt að skera brautinaí teighöggi en varasamt að missa

boltann útaf hægra megin í hraun og mosa (algengt að kylfingar lendi þar). Venjulega miða ég á staurinn og er sáttur við að eiga 80-100m eftir í annað högg.

Flötin er löng og mjó. Rétt kylfuval er því mikilvægt. Allt hægramegin við flötina er bannsvæði. Þar er hægt að lenda í vondum málum. Ánægður með par hér.


6/15
293m/254m

Þægileg par 4 hola en mótvindur getur sett strik í reikninginn. Venjulega miða ég á glompuna en allt í lagi að vera hægrmegin því þá opnast flötin betur.

Flötin er frekar lítil, löng og mjó. Þegar holan er aftarlega er hún nokkuð strembin því þá koma glompurnar meira í leik. Góður möguleiki á fugli hér við réttar aðstæður.


 7/16 
170m/154m

Mjög skemmtileg par 3 hola  þar sem flötin sést ekki frá teig. Rétt kylfuval hér er mikilvægt því ef maður er of stuttur hér er það ávísun á skolla.

Mjög stór flöt þar sem 3 pútt eru ekki langt undan. Ánægður með par.


 8/17
449m/395m

 Ein sú fallegasta par 5 ola sem ég hef spilað. Gefur mikla möguleika á fugl. Ef teighöggið er gott (yfir Sauðá um 210m flug) þá er stutt annað högg í vændum.

Varast ber þó að lenda í ánni sem hlykkjast meðfram flötinni hægrameginog hefur gleypt margan boltann. Tvær glompur verja flötina sem er stór. Ef ég legg upp í

teighögginu nota ég ýmist 4 - 5 járn eða 3 tré (fer eftir vindi.  Í annað högg nota ég hybrid eða 3 tré og á þá vonandi eftir eina 40-60m að flöt og góður möguleiki á fugli.


9/18 
150m/111m

Þessi par 3 braut hefur reynst mér erfið sérstaklega varðandi kylfuval. Það er eins og vindurinn sé óútreiknanlegur hérna. Flötin er löng og mjó á tveimur stöllum.

Ef holn er á efri stalli getur reynt verulega á hæfileikana í stutta spilinu. Par er alltaf kærkomið hér.


Golfklúbbur Hveragerðis sími 483-5090